Thursday, March 10, 2005

Enn eitt dæmið um löglegt en siðlaust....

Það svíður undan þeirri aðför sem farin er að Ríkisútvarpi allra landsmanna þessa dagana. Og að nútímanum, samfélaginu sem við búum í ...Ég óska eftir umpólun á Alþingi allra landsmanna og það strax í dag. Taka verður á málefnum Rúv hið snarasta. Pólitískt skipað útvarpsráð er orðin alger tímaskekkja, hefur margsannað tilgangsleysi sitt og það er ekki horfandi upp á það lengur hvernig tíma og fjármunum hins almenna borgara er sóað þar. Ég er afskaplega ósátt við hlutverk þess og í raun vinnubrögð ráðsins líka. Ég spyr: Hvernig í ósköpunum komst meirihluti útvarpsráðs að sinni niðurstöðu? Og af hverju í ósköpunum sitja menn hjá í eins mikilvægri stöðuveitingu sem þessari? Rök beggja aðila, þ.e. meirihluta og minnihluta, standa engan veginn, virka kannski sem afsakanir en ekki rök. Pólitískt skipaður útvarpsstjóri til eilífðar er einnig tímaskekkja og ég hvet Markús Örn Antonsson til að segja af sér hið fyrsta. Ekki eingöngu vegna þessa máls en að sitja í stöðu sem þessari, í hvað eru þetta 14 ár, er forkastanlegt. Hann hefur 3 sinnum verið settur í þessa stöðu en staðan er í hvert sinn sett til 5 ára. Það er engum til góða að sitja í sama farinu svo lengi og ég hvet Markús til að finna menntun sinni og reynslu annan farveg þjóðinni og honum sjálfum til heilla. Ég er hjartanlega sammála Jóhanni Haukssyni um að í þessu máli hafa allir tapað. Allir þeir stjórnmálaflokkar sem þarna koma að málum, allir umsækjendur, útvarpsstjóri, Ríkisútvarpið sem koncept og sem vinnustaður og öll íslenska þjóðin hafa tapað. Það kemur enginn sterkur út úr þessu máli, máli sem ætti að vera lítið mál. Mannaráðningar!! Mig langar til að hvetja þá sem bera ábyrgð á þessu, þá bæði ríkistjórn okkar, útvarpsráð og þá sérstaklega útvarpsstjóra, að axla þessa ábyrgð heiðarlega, viðurkenna mistök sín og svona kannski í leiðinni setjast aftur á skólabekk og kynna sér nútíma stjórnunarhætti, starfsmannstjórnun og lýðræðisleg vinnubrögð.

4 Comments:

At 30 March, 2005, Blogger GI Jane said...

heyrðu, haltu áfram að skrifa unga kona!!! það þýðir ekkert svona, vökult auga mitt vakir yfir þessum skrifum þínum.

yfir

 
At 13 January, 2006, Blogger chrishuron9280 said...

I read over your blog, and i found it inquisitive, you may find My Blog interesting. My blog is just about my day to day life, as a park ranger. So please Click Here To Read My Blog

http://www.juicyfruiter.blogspot.com

 
At 28 March, 2006, Blogger kevinmorgan1762993902 said...

Do you want free porn? Contact my AIM SN 'p1nkn3ss' just say 'give me some pics now!'.

No age verification required, totally free! Just send an instant message to AIM screen name "p1nkn3ss".

Any message you send is fine!

AIM abuse can be reported here.

 
At 14 May, 2006, Blogger tandyandres74311680 said...

Get any Desired College Degree, In less then 2 weeks.

Call this number now 24 hours a day 7 days a week (413) 208-3069

Get these Degrees NOW!!!

"BA", "BSc", "MA", "MSc", "MBA", "PHD",

Get everything within 2 weeks.
100% verifiable, this is a real deal

Act now you owe it to your future.

(413) 208-3069 call now 24 hours a day, 7 days a week.

 

Post a Comment

<< Home